Framleiðendur
Jollies framleiðandinn
Jollies fyrirtækið er rekið af kjarnakonunni Luze Chaves. Luze er fyrrverandi kennari og með bakgrunn í náttúrulækningum, henni er umhugað um velferð kvenna og hluti hagnaðar Jollies rennur til kvennaathvarfs sem starfrækt er nálægt fyrirtækinu.
Fun Factory
Litrík og skemmtileg leikföng er það sem einkennir Fun Factory. Fyrirtækið var stofnað af Dirk Bauer og Michael Pahl 1996. þeir komust að því að ekki voru til smekkleg gæða leikföng sem höfðuðu til kvenna.


