Category Navigation:

You're currently on:

Search Site
 

Fun Factory

Litrík og skemmtileg leikföng er það sem einkennir Fun Factory. Fyrirtækið var stofnað af Dirk Bauer og Michael Pahl 1996. þeir komust að því að ekki voru til smekkleg gæða leikföng sem höfðuðu til kvenna. Þeir fengu hugljómun og til varð fyrsta leikfang Fun Factory, mörgæsin Paddy pinguin, mótað úr leikfangaleir á eldhúsborðinu. Síðan þá hefur stefna Fun Factory verið að framleiða skemmtileg erótísk leikföng úr öruggum efnum. Öll leikföng Fun Factory eru annað hvort úr 100% læknasilikoni eða elastomed, sem er eiturefnalaust plast. Litagleðin er mikil og áhersla löggð á að leikföngin séu ekki eftirlíkingar af typpum. Fun Factory vill að konur, menn og pör hafi gaman af kynlífi og njóti þess að vera góð við sig sjálf og hvort annað. Leikgleðin er því alsráðandi í hönnuninni.

Verksmiðja Fun Factory er í sama húsi og skrifstofurnar í Bremen, Þýskalandi. Vörurnar eru því allar framleiddar í Þýskalandi eftir evrópskum stöðlum og allir víbradorar með CE vottun. Fun Factory er stærsti framleiðandi erótískra leikfanga í Evrópu og eru vörunar vinsælar um allan heim. Víbradorinn Delight fékk Red dot hönnunarverðlaun 2008 og hefur verið tilnefndur til Designpreis hönnunarverðlauna í Þýskalandi 2009. Víbradorarnir Sinnflut intensity og Patchy Paul voru prófaðir af þýsku neytendastofnuninni Ökotest og fengu þar hæstu einkunn fyrir gæði.