Jollies fyrirtækið er rekið af kjarnakonunni Luze Chaves. Luze er fyrrverandi kennari og með bakgrunn í náttúrulækningum, henni er umhugað um velferð kvenna og hluti hagnaðar Jollies rennur til kvennaathvarfs sem starfrækt er nálægt fyrirtækinu. Hönnuður Jollies starfaði áður í læknisiðnaðinum og hannaði hluti úr silikoni, hann notar þá reynslu við hönnun leikfanganna og notar því fremur nýstárlega nálgun við hönnunina. Leikföngin eru hönnuð út frá lögun líkamans og því oft tekin mót af raunverulegu fólki sem notuð eru til hliðsjónar við hönnun leikfangsins. Útlit leikfanganna ræðst þess vegna út frá notagildinu en ekki út frá fagurfræðilegum forsendum. Út frá þessum hugmyndum var Jollie hannaður. Hugmyndin var að hanna dildó sem passaði inn í leggöngin í stað þess að láta leggöngin laga sig að dildónum. Jollie var fyrsti dildóinn sem settur var á markað og hefur hönnun hans lagt grunninn að fleiri gæða leikföngum eins og Jollet og Jollie rider.

Silikon er sterkt efni sem þolir vel hita, það er ógljúpt og því engar holur sem bakteríur og óhreinindi geta falið sig í. Það er því mjög auðvelt að halda silikonleikföngum hreinum og sótthreinsa þau. Silkonið sem Jollies notar er 100% gæðasilikon og því má nota öll sleipiefni með leikföngunum. Það er lyktarlaust, hitnar fljótt upp að líkamshita og leiðir vel titring. Ef þú hugsar vel um Jollies leikfangið þitt þá ætti það að endast þér ævina.
