Um okkur

Hvað er Meyland?
Meyland er fyrst og fremst erótísk leikfangaverslun fyrir konur. Á Meylandi er hægt að kaupa gæða leikföng úr öruggum efnum sem valda ekki ofnæmi og eru leikföngin mörg hver hönnuð sérstaklega fyrir kvenlíkamann og þarfir kvenna. Við reynum að gefa greinagóðar lýsingar á vörunum svo viðskiptavinkonan viti nákvæmlega hvað hún er að kaupa.
En hverjir standa á bak við verslunina?
Við erum venjulegt ungt par sem finnst gaman að krydda kynlífið með leikföngum. En kvenhelmingnum fannst leiðinlegt að ganga inn í verslun eða kíkja á netið og sjá klámstjörnurnar blasa við, allstaðar var búið að klámvæða kynlífið og leikföngin. Henni fannst hún vera fá þau skilaboð að aðeins pervertar og kynlífsótt fólk notaði leikföng. Var hún þá pervert og kynlífsóð?
Kvenhelmingurinn er einnig ein af þeim sem er með viðkvæma húð og fær sviða og óþægindi ef einhver aukaefni eru til staðar. Erfiðlega gekk að finna leikföng sem voru úr efnum sem ekki valda ofnæmi. Við fórum því að versla við erlendar síður. Þar opnaðist fyrir okkur nýr heimur. Við fundum kvenvænar verslanir sem lögðu áherslu á gæða leikföng úr öruggum efnum. Verslanir sem leituðust við að veita eins miklar upplýsingar um vörurnar og hægt var. Við fundum framleiðendur sem lögðu metnað sinn í að hanna leikföng með þarfir kvenna í huga.
Við spurðum okkur afhverju væri engin svona verslun hér á landi? Svo spurðum við okkur afhverju opnum við ekki svona verslun? Og þar með varð hugmyndin að Meylandi til.
Meyland ehf
Herdís og Palli
